Ólympíuleikarnir í þýsku
Katrín Ásgeirsdóttir 5.A sigraði í undankeppni fyrir Alþjóðlegu Ólympíuleikana í þýsku sem fara fram í Hamburg dagana 25. júlí - 5. ágúst. Til hamingju Katrín og gangi þér vel!
Katrín Ásgeirsdóttir 5.A sigraði í undankeppni fyrir Alþjóðlegu Ólympíuleikana í þýsku sem fara fram í Hamburg dagana 25. júlí - 5. ágúst. Til hamingju Katrín og gangi þér vel!
Nú liggja fyrir niðurstöður þýskuþrautar og nemendur úr fimm framhaldsskólum tóku þátt í henni. Í ár var haldin þýskuþraut á tveimur stigum. Nemendum verður boðið sérstaklega á uppskeruhátíð sem fer fram þann 20. maí klukkan 16.30 í Kvennaskólanum. Nemendur skólans [...]
Vegna páskahátíðar verður skrifstofa skólans lokuð frá mánudeginum 11. apríl til miðvikudagsins 20. apríl. Gleðilega páska!
Síðastliðinn laugardag stóðu starfsmenn og nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík fyrir opnu húsi. Þessi viðburður er einkum hugsaður fyrir nemendur á lokaári grunnskóla til að auðvelda þeim valið á framhaldsskóla. Eftir sóttvarnartakmarkanir síðustu ára var það kærkomið að endurvekja þennan [...]
MR sigraði Gettu betur í 22.skipti á föstudaginn 18.mars. Sigurliðið skipaði Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir 5.A, Katla Ólafsdóttir 5.A og Oddur Sigurðarson 6.Y og óskum við þeim innilega til hamingju með sigurinn. Þetta er tuttugasti og annar sigur MR í keppninni [...]
Forritunarkeppni framhaldsskólanna var haldin laugardaginn 19. mars í Háskólanum í Reykjavík. Í fyrsta sæti í Alfa deild var lið frá Menntaskólanum í Reykjavík með þeim Benedikt Vilja Magnússyni 5.X, Einar Andri Víðisson 6.X og Kirill Zolotuskiy 5.X. Lið þeirra hét [...]
Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 3. mars. Alls tók 51 nemandi þátt, úr fimm skólum. Sigurvegari 21. Almennu landskeppninnar í efnafræði er Benedikt Vilji Magnússon, nemandi við MR, en hann hlaut 65 stig af 100 [...]
Eftir æsispennandi keppni er lið MR komið í úrslit í Gettu betur. Við óskum Ingibjörgu, Kötlu og Oddi innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu og óskum þeim góðs gengis í úrslitunum.
Annar fundur í Erasmus verkefninu var 7.—11. febrúar 2022. Fimm kennarar fóru á vegum skólans til Brakel, Belgíu . Þær þjóðir sem eru í verkefninu eru auk Íslands og Belgíu, Grikkland, sem stjórnar verkefninu, Serbía og Portúgal. Aðal tilgangur fundarins [...]