Tvær máladeildir

Tvær öflugar máladeildir eru í MR: Nýmáladeild og fornmáladeild.  Í nýmáladeild er áhersla lögð á tungumál sem töluð eru í heiminum í dag en í fornmáladeild er lögð áhersla á rótgróna evrópska menntahefð sem á rætur að rekja til Rómverja og Grikkja.

Við kennslu erlendra tungumála í MR er lögð áhersla á að nota fjölbreyttar aðferðir og miðla til að gera námið líflegt, gagnlegt og skemmtilegt.

Stúdentspróf af máladeild MR byggir grunn fyrir fjölbreytt háskólanám til að mynda í hugvísindum, félagsvísindum, listgreinum, lögfræði og menntavísindum.

Hér er hægt að nálgast kynningarbækling um máladeildir MR.