Skólahjúkrunarfræðingur

Hjúkrunarfræðingur skólans heitir Ester Böðvarsdóttir. Netfang hennar er: esterb@mr.is

Viðtalstímar eru:

Mánudagar og miðvikudagar: 11-16

Þriðjudagar: 8-13

Fimmtudagar og föstudagar: 8-12

Nemendur geta komið við eða sent fyrirspurnir með tölvupósti á . Fyrirspurnir mega vera nafnlausar.
Forráðamönnum nemenda er einnig velkomið að hafa samband með tölvupósti eða í síma 545-1919.

Viðtalsherbergi hjúkrunarfræðinga er á þriðju hæð í Skólahúsinu.

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

Meiðsli og sjúkdóma

Áfengis- og eiturlyfjaneyslu

Reykingar

Kynheilbrigði

Tilfinningaleg og geðræn vandamál

Verki eða vanlíðan

Mataræði og hreyfing

Sjálfsmynd og líkamsímynd

Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.

Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur

  • vera með fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
  • vera í samstarfi við forvarnarfulltrúa skólans við vinnu að forvörnum
  • vera innanhandar með ráðgjöf til kennara og starfsfólks
  • sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
  • finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda.