Rýmingaráætlun

Ef brunaviðvörunarkerfið fer í gang skal unnið samkvæmt eftirfarandi rýmingaráætlun.

Athugið að brunakerfið er tengt slökkvistöð.

  • Rektor/konrektor stýrir aðgerðum, er samskiptaaðili við almannavarnir/slökkvilið, lögreglu og fjölmiðla.
  • Umsjónarmaður fasteigna/öryggistrúnaðarmaður 1 sér um að kanna brunaboð, athuga eldsupptök og slökkva á kerfi þegar við á.
  • Konrektor/öryggistrúnaðarmaður 2 kannar rýmingu húsnæðis, lokar brunahólfum og kannar biðsvæði hreyfihamlaðra.
  • Kennslustjóri/Skrifstofustarfsmaður 1 sér um nemendabókhald eftir rýmingu.
  • Verkefnastjóri/Skrifstofustarfsmaður 2 sér um að halda viðburðaskráningu.

Hlutverk kennara og annarra starfsmanna (t.d. á bókasafni, við námsráðgjöf, á skrifstofu) við eldsvoða eða aðra vá:

  1. Kennari vísar nemendum úr stofu á næstu opnu útgönguleið. Kennari þarf að kanna hvaða leið er fær. Ef reykur er á flóttaleið skal velja næstu flóttaleið. Ekki nota lyftur. Gólf og veggir geta verið brotin eftir jarðskjálfta.
  2. Kennari leiðir hópinn niður á skólalóð og lokar á eftir sér.
  3. Kennari kannar hvort einhver þurfi hjálp á leið út, t.d. ef viðkomandi er í hjólastól, með hækjur, vegna veikinda eða vegna slyss eftir vá og fylgja viðkomandi út eða að biðsvæði þegar við á (ekki má nota lyftu, fá skal nemendur til þess að bera út hjólastól ef með þarf).
  4. Kennari safnar nemendum saman og fer með þá á viðeigandi stað neðarlega á skólalóð (sjá spjald í hverri stofu).
  5. Kennarar hjálpast að við að tryggja að útgönguleiðir teppist ekki.
  6. Slökkviliðið/Almannavarnir/lögregla kemur á staðinn og stýrir aðgerðum ásamt rektor
  7. Ef veður er vont skal fara með nemendur í húsaskjól um leið og rektor/stjórnandi aðgerða gefur leyfi. Hugsanleg húsaskjól eru önnur hús skólans, sem eru ekki í hættu, strætisvagnar eða verslunar- og veitingastaðir í nágrenninu.

 

Kynntu þér eftirfarandi:

  1. Rýmingaráætlun hvers húss sem þú kennir í.
  2. a) Tvær flóttaleiðir eða fleiri í hverju húsi.
  3. b) Bið- og söfnunarsvæði.
  4. Útgönguleiðir.
  5. Staðsetningu og notkun brunaboða.
  6. Annan neyðarbúnað sem er til staðar, t.d. sjúkrakassa.

 

Rýming á Gamla skóla

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr sem eru tvöfaldar.
  2. Bakdyr sem eru einfaldar.
  3. Neyðarstigar eru tveir úr Hátíðarsal á annarri hæð, báðir austan megin.
  4. Neyðarstigi er úr kennarastofu á annarri hæð og annar í innra herbergi á bak við sófann.
  5. Neyðarstigi er á þriðju hæð í norðurenda í glugga við enda gangsins.
  6. Aðrar flóttaleiðir eru út um glugga á jarðhæð. Slökkvilið kemur með stiga að gluggum á öðrum hæðum þar sem þess er þörf.

Nemendur safnast saman á túni fyrir framan Gamla skóla.

Söfnunarsvæði 2: Við útitafl fyrir framan Bernhöftstorfu.

 

Rýming á Fjósi

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr.
  2. Út um glugga.

Rýming á Íþöku

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr
  2. Dyr að Bókhlöðustíg.
  3. Út um glugga.
  4. Brunastigi er norðan megin á efri hæð.

Nemendur safnast saman á túni fyrir framan Gamla skóla.

Söfnunarsvæði  2: Við útitafl fyrir framan Bernhöftstorfu.

Rýming á Casa nova

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr út á bílastæði kennara við Casa nova.
  2. Dyr við hringstiga út á Bókhlöðustíg.
  3. Í gegnum tengibyggingu að dyrum út á Þingholtsstræti.
  4. Aðrar flóttaleiðir eru út um glugga á jarðhæð. Slökkvilið kemur með stiga að gluggum á efri hæðum þar sem þess er þörf.

Nemendur safnast saman á túni fyrir framan Gamla skóla.

Söfnunarsvæði 2: Við útitafl fyrir framan Bernhöftstorfu.

 

Rýming á Elísabetarhúsi

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr út á Þingholtsstræti.
  2. Í gegnum tengibyggingu að dyrum við hringstiga út á Bókhlöðustíg eða aðalinngang í Casa nova.
  3. Aðrar flóttaleiðir eru út um glugga á jarðhæð og dyr í jarðfræðistofu. Slökkvilið kemur með stiga að gluggum á efri hæðum þar sem þess er þörf.

Nemendur safnast saman á túni fyrir framan Gamla skóla.

Söfnunarsvæði 2: Við útitafl fyrir framan Bernhöftstorfu.

Rýming á tengibyggingu milli Casa nova og Elísabetarhúss

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr út á Þingholtsstræti.
  2. Dyr við jarðfræðistofu.
  3. Um aðalinngang eða dyr út á Bókhlöðustíg í Casa nova.
  4. Aðrar flóttaleiðir eru út um glugga á jarðhæð. Slökkvilið kemur með stiga að gluggum á annarri hæð þar sem þess er þörf.

Nemendur safnast saman á túni fyrir framan Gamla skóla.

Söfnunarsvæði 2: Við útitafl fyrir framan Bernhöftstorfu.

Rýming á íþróttahúsi

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr út á bílastæði kennara við Casa nova.
  2. Neyðarútgangur úr sal.

Nemendur safnast saman á túni fyrir framan Gamla skóla.

Söfnunarsvæði 2: Við útitafl fyrir framan Bernhöftstorfu.

 

Rýming á Austurstræti 17

Útgönguleiðir eru:

  1. Aðaldyr að Austurstræti.
  2. Af 5. og 6. hæð um neyðarútganga og neyðarstiga niður í port við Kolasund.
  3. Um neyðarútgang á hverri stofu og neyðarstiga niður í port við Kolasund.

Nemendur safnast saman í Hafnarstræti við hús nr. 16 og í Austurstræti við hús nr. 16.

Söfnunarsvæði 2: Lækjartorg.

 

Viðbrögð við náttúruvá

Skólinn fylgist með ráðleggingum frá Almannavörnum varðandi náttúruvá og hlítir þeim fyrirmælum í hvívetna.

http://www.almannavarnir.is