Skrifstofa skólans er staðsett á 2. hæð í Gamla skóla og er opin mánudaga til fimmtudaga frá 8:10-15:30 og föstudaga frá 9:10 – 13:00. Skrifstofan er lokuð í hádeginu á milli 12:10 og 12:40.
Á skrifstofu eru veittar allar almennar upplýsingar.
Skólavottorð og vottorð vegna skattalækkunar, staðfesting á námslokum og afrit af stúdentseinkunnum vegna skólaumsókna erlendis eru gefin út á skrifstofu.
Skrifstofan veitir einnig upplýsingar um styrki til nemenda.
Umsóknum um undanþágur eða leyfi ber að skila á sérstökum eyðublöðum á skrifstofu skólans.
Athugið að starfsfólk skrifstofu tekur ekki við tilkynningum um forföll nemenda en forföll er skráð með rafrænum hætti í gegnum Innu.
Starfsfólk skrifstofu:
Helga Liv Óttarsdóttir, fjármála- og skrifstofustjóri
Þóra Kristín Briem, fulltrúi