Opið hús í Menntaskólanum í Reykjavík
Síðastliðinn laugardag stóðu starfsmenn og nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík fyrir opnu húsi. Þessi viðburður er einkum hugsaður fyrir nemendur á lokaári grunnskóla til að auðvelda þeim valið á framhaldsskóla. Eftir sóttvarnartakmarkanir síðustu ára var það kærkomið að endurvekja þennan [...]
MR sigraði Gettu betur 2022
MR sigraði Gettu betur í 22.skipti á föstudaginn 18.mars. Sigurliðið skipaði Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir 5.A, Katla Ólafsdóttir 5.A og Oddur Sigurðarson 6.Y og óskum við þeim innilega til hamingju með sigurinn. Þetta er tuttugasti og annar sigur MR í keppninni [...]
Forritunarkeppni framhaldsskólanna 2022
Forritunarkeppni framhaldsskólanna var haldin laugardaginn 19. mars í Háskólanum í Reykjavík. Í fyrsta sæti í Alfa deild var lið frá Menntaskólanum í Reykjavík með þeim Benedikt Vilja Magnússyni 5.X, Einar Andri Víðisson 6.X og Kirill Zolotuskiy 5.X. Lið þeirra hét [...]
Gettu betur
Eftir æsispennandi keppni er lið MR komið í úrslit í Gettu betur. Við óskum Ingibjörgu, Kötlu og Oddi innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu og óskum þeim góðs gengis í úrslitunum.
Digital Readiness for European Distance Learning
Annar fundur í Erasmus verkefninu var 7.—11. febrúar 2022. Fimm kennarar fóru á vegum skólans til Brakel, Belgíu . Þær þjóðir sem eru í verkefninu eru auk Íslands og Belgíu, Grikkland, sem stjórnar verkefninu, Serbía og Portúgal. Aðal tilgangur fundarins [...]
Smásögukeppni Félags enskukennara á Íslandi
Í síðustu viku fór fram verðlaunaafhending í smásögukeppni Félags enskukennara á Íslandi. Hátíðarverðlaunaafhending fór fram á Bessastöðum og veitti forsetafrúin Elisa Reid verðlaunin. Metþátttaka var í keppninni og náði Brynjar Karl Hákonarson í 5.T þeim frábæra árangri að fá önnur [...]
Norræna stærðfræðikeppnin 4. apríl
Úrslitakeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór fram laugardaginn 5. mars. Árangur nemenda skólans var einkar glæsilegur. Af 17 efstu voru 11 úr MR og hefur þeim verið boðin þátttaka í Norrænu stærðfræðikeppninni 4. apríl næstkomandi. 1. Benedikt Vilji Magnússon Menntaskólanum í Reykjavík [...]
Jöfnunarstyrkur
Jöfnunarstyrkur (áður dreifbýlisstyrkur) er námsstyrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu. Fjarnám er ekki styrkhæft. Dreifnám er aðeins styrkhæft ef nemendur þurfa að koma í skólann a.m.k. 50% af dagafjölda nemenda sem stunda dagsskóla. Umsóknarfrestur vorannar [...]
Nordplus verkefni hafið
Í síðustu viku var fyrsti fundur í nýju Nordplus verkefni sem skólinn tekur þátt í ásamt Røros Videregående Skole í Noregi. Það voru þær Elín, Freyja, Halla, Urður, Viktoría og Þórhildur í 5.M sem tóku þátt í verkefninu fyrir hönd [...]








