TOLLERINGAR
Tolleringar fóru fram í Menntaskólanum í Reykjavík í dag í dásamlegu veðri. Við bjóðum alla nýnema velkomna í hóp nemenda MR. Myndir teknar af Trausta Þorgeirssyni
Tolleringar fóru fram í Menntaskólanum í Reykjavík í dag í dásamlegu veðri. Við bjóðum alla nýnema velkomna í hóp nemenda MR. Myndir teknar af Trausta Þorgeirssyni
Kynningarfundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánudagskvöldið 29. ágúst. Tjarnarsalurinn var þéttsetinn þegar rektor skólans, fulltrúi foreldrafélags MR, forvarnafulltrúi og félagsmálafulltrúi og forsvarsmenn nemendafélaganna kynntu skólann, starfsfólk og félagslíf nemenda. Forráðamenn gengu svo upp [...]
Á mánudaginn 29.ágúst tóku fjórir fyrrverandi nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til [...]
Menntaskólanum í Reykjavík var slitið í 176. sinn við brautskráningu stúdenta í Háskólabíó föstudaginn 27. Maí. Brautskráðir voru alls 208 nýstúdentar. Dúx 6. bekkjar að þessu sinni var Katrín Ósk Arnarsdóttir sem útskrifaðist með aðaleinkunn upp á 9,88. Katrín stundaði [...]
Íslenska Ólympíuliðið í eðlisfræði fór á dögunum til Ljubljana í Slóveníu á Evrópuleikana í eðlisfræði. Flogið var út 19. maí, sama dag og fjórir elstu liðsmenn liðsins kláruðu síðustu stúdentsprófin sín. Það var því ekki mikill undirbúningur sem liðið hafði [...]
Brautskráning stúdenta verður í dag föstudaginn 27.maí kl. 14:00 í Háskólabíói. Kveðja, rektor
Próftafla fyrir endurtökupróf hefur nú verið birt. Hægt er að nálgast hana hér.
Einkunnaafhending 4. og 5. bekkjar verður á morgun kl. 12 í heimastofum. Kl. 13 hefst prófsýning. Niðurröðun greina má sjá á töflu í anddyra Gamla skóla og Casa Nova. Prófsýning 6. bekkjar hefst kl. 14.
Aðalfundur Hollvinafélags MR verður haldinn þriðjudaginn 7. júní á Sal Menntaskólans kl. 17:00. Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf og stjórn kjörin. Stjórnina skipa nú Halldór Kristjánsson formaður og meðstjórnendur eru Brynjólfur Jónsson, Kristín Heimisdóttir, Kristrún Heimisdóttir, Laufey Gunnarsdóttir, Ólafur Stephensen, [...]
Tímasetning sjúkraprófa liggur nú fyrir og er hægt að nálgast tölfuna fyrir hér og sem hlekk undir Gagnlegar síður