Aðventustund í Dómkirkjunni – jólalög
Bjart er yfir Betlehem (Ingólfur Jónsson/Lag höf.ókunnur) Bjart er yfir Betlehem, blikar jólastjarna. Stjarnan mín og stjarnan þín, stjarnan allra barna. Var hún áður vitringum vegaljósið skæra, barn í jötu borið var, barnið ljúfa, kæra. Víða höfðu vitringar vegi [...]
Einkunnaafhending og jólafrí
Einkunnaafhending verður fimmtudaginn 18. desember. Gengið verður til kirkju í Dómkirkjuna kl. 14:00. Eftir stutta aðventustund í kirkjunni fer einkunnaafhending fram í heimastofum nemenda. Einkunnir verða birtar í INNU sama dag. Skólinn verður lokaður frá 19. desember. Fyrsti kennsludagur eftir [...]
Sjúkrapróf jól 2025
Sjúkraprófstaflan fyrir alla bekki hefur verið birt á heimasíðu skólans. Sjá hægri valmynd.
Aldrei of seint að skila bókum á Íþöku
Á stjórnarfundi Hollvinafélags Menntaskólans í Reykjavík skilaði einn stjórnarmanna, Bogi Ágústsson, bók sem hann hafði fengið að láni á Íþöku þegar hann var nemandi við skólann. Rektor veitti bókinni viðtöku og felldi í leiðinni niður áfallnar sektir á bókina. Bókin [...]
Ljóðasamkeppni
Í tilefni af degi íslenskrar tungu 17. nóvember efndi íslenskudeildin til ljóða- og örsagnakeppni milli nemenda og starfsfólks. Ljóð og örsaga eftir nemanda og starfsmann, voru valin úr fjölda innsendra og verðlaunuð á Sal. Svo skemmtilega vildi til að bæði [...]
Leikfélagið Frúardagur sýnir Ástandið
Leikfélagið Frúardagur sýnir leikritið Ástandið í þessari viku. Sýningar eru í Gamla bíó 10., 11., 12. og 16 nóvember. Þetta er mjög flott sýning hjá þessu frábæra hópi nemenda og við hvetjum öll til að fara og eiga skemmtilega stund [...]
Kennsla fellur niður miðvikudaginn 29. október.
Í ljósi þess að fjöldi kennara og starfsfólks er veðurtepptur í skólaheimsókn erlendis og margir nemendur hafa ekki komist heim úr fríum eftir hausthlé munum við fella niður alla kennslu á morgun miðvikudag. Kennsla hefst að nýju eftir hausthlé kl. 08:30 á fimmtudagsmorguninn. [...]
Minningarskjöldur Alþingis
Alþingi færði MR minningarskjöld í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fyrsta löggjafarþingi Íslendinga eftir að Alþingi var endurreist, 1. júlí 1875. Sama ár var skrifstofa Alþingis stofnuð með yfirlýsingu Jóns Sigurðssonar forseta. Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis [...]
Úrslit forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema
Forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór fram þriðjudaginn 30. september síðastliðinn og tóku 205 nemendur úr hinum ýmsu framhaldsskólum þátt. Árangur nemenda Menntaskólans var afar glæsilegur. Á neðra stigi átti Menntaskólinn 8 af 13 efstu en á efra stigi 15 af 21 [...]








