Árleg frönskukeppni grunn-og framhaldsskólanna var haldin laugardaginn 12. apríl sl.
Að keppninni standa Félag frönskukennara á íslandi, Alliance française og Sendiráð Frakklands á Íslandi.
Nemendur skiluðu inn myndböndum og var þemað í ár „ Fjör í frönsku“.
Verðlaun voru afhent við hátíðlega athöfn í Veröld, húsi Vigdísar.
Sigrún Æsa Pétursdóttir og Lana Sóley Magnúsdóttir, nemendur í 5.B hrepptu 3. sætið fyrir mjög flott og skemmtilegt myndband.
Við óskum þeim innilega til hamingju.