Skólanum var færð höfðingleg gjöf í tilefni 180 ára afmælis skólans, málverk eftir Kristján Davíðsson listmálara (1917-2013), af Bodil Sahn dönskukennara við skólann. Myndin er úr einkaeigu Kára Stefánssonar fyrrum forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, en með honum kom sonur listamannsins, Björn Davíð Kristjánsson.
Kári fékk að máta sætið sitt í H-stofu eftir fund með rektor.
Skólinn þakkar kærlega fallega gjöf.