Lesaðstaða í húsnæði Dómkirkjunnar
Skólanum hefur tekist að fá afnot af húsnæði Dómkirkjunnar til að nemendur MR fái lesaðstöðu. Aðstaðan er á horni Lækjargötu og Vonarstrætis og verður opin frá 10-18 (mán - fim) og 10-16 á föstudögum.
Skólanum hefur tekist að fá afnot af húsnæði Dómkirkjunnar til að nemendur MR fái lesaðstöðu. Aðstaðan er á horni Lækjargötu og Vonarstrætis og verður opin frá 10-18 (mán - fim) og 10-16 á föstudögum.
Nýjar reglur um sóttkví í skólum hafa tekið gildi. Hægt er að skoða reglurnar hér.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda nám fjarri heimili sínu geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Opnað verður fyrir umsóknir 1. september og lokadagsetning til að sækja um jöfnunarstyrk er 15. október næstkomandi. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn með [...]
Menntaskólinn í Reykjavík var settur í dag, hægt er að horfa á skólasetninguna hér: https://youtu.be/bwrOII-xFHY
Skólinn verður settur rafrænt fimmtudaginn 19. ágúst klukkan 14, hægt verður að fylgjast með á heimasíðu skólans. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 20. ágúst. Á morgun, miðvikudag, er kynning fyrir nýnema í skólanum og hefst hún klukkan 10.
Bóksala skólans er opin alla virka daga milli 8 og 15. Bóksalan er staðsett á skrifstofu skólans á 1. hæð í Gamla Skóla.
Í sumar tóku eftirfarandi MR-ingar þátt á Ólympíuleikunum og Evrópuleikunum í eðlisfræði: Jón Valur Björnsson (6.X) Hilmir Vilberg Arnarsson (6.X) Hildur Gunnarsdóttir (5.Y) Teresa Ann Frigge (5.Y) Nemendur stóðu sig mjög vel á leikunum en sérstaklega má nefna árangur tveggja [...]
Skráningu á sumarnámskeiðin okkar lýkur fimmtudaginn 29. júlí. Skráning fer fram hér á heimasíðu skólans.
Skrifstofa skólans er komin í sumarfrí og opnar aftur fimmtudaginn 5. ágúst. Gleðilegt sumar.
Skrifstofa skólans er opin milli 8 og 13 fram að sumarfíi. Skrifstofan er lokuð vegna sumarleyfa frá og með 18. júní og opnar aftur 5. ágúst.