Brautskráning nýstúdenta 2026
Brautskráning nýstúdenta verður 29. maí kl. 14. Athöfnin verður haldin í Háskólabíó. Nemendur fá nánari upplýsingar síðar.
Brautskráning nýstúdenta verður 29. maí kl. 14. Athöfnin verður haldin í Háskólabíó. Nemendur fá nánari upplýsingar síðar.
Rektor afhenti í gær nemendum í valáfanganum fyrirtækjasmiðjan viðurkenningaskírteini fyrir þátttöku í vörumessunni Ungir Frumkvöðlar. Nemendur í fyrirtækjasmiðjunni fengu tækifæri til að kynnast heimi nýsköpunar og atvinnulífs með því að þróa eigin vörur og reka lítil fyrirtæki. Markmiðið er að [...]
Í febrúar var haldin þýskuþraut á vegum Þýskukennarafélags Íslands. Fjórir nemendur í MR fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í þýskuþrautinni. Nemendur fengu bókaverðlaun frá þýskukennarafélaginu og sendiráði Þýskalands á Íslandi. Á stigi 1 (nemendur sem eru búnir að læra þýsku [...]
Skólinn hlaut á dögunum veglegan styrk frá Menningar- og framfarasjóði Ludvig Storr. Styrkurinn var nýttur til þess að endurnýja tækjabúnað í líffræðistofunni. Allar smásjár voru endurnýjaðar og keypt var ný kennarasmásjá með myndavél. Einnig voru mælar og sótthreinsitæki endurnýjuð. Tækin [...]
Valdimar Örnólfsson fyrrverandi kennari við MR lést þann 20. apríl. Hann lauk stúdentsprófi við skólann árið 1953 og kenndi síðan íþróttir í MR á árunum 1957-1967 og einnig frönsku frá 1958 til 1972. Hann var íþróttastjóri hjá Háskóla Íslands frá [...]
Við óskum Morfís liði skólans innilega til hamingju með flottan árangur í Mælsku-og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Í úrslitaviðureigninni var umræðuefnið kostir og gallar gervigreindar og höfðu MR-ingar betur gegn liði Kvennaskólans. Auk þess var MR-ingurinn Bergþóra Hildur Andradóttir valin [...]
Í dag eru þrír hópar af nemendum úr MR að kynna vörur sínar á vörumessunni Ungir frumkvöðlar sem haldin er í Smáralind. Þessir nemendur eru búnir að vera að hanna og þróa vörur sínar í áfanganum Fyrirtækjasmiðjan. Skiptitorgið er vefsíða [...]
Árleg frönskukeppni grunn-og framhaldsskólanna var haldin laugardaginn 12. apríl sl. Að keppninni standa Félag frönskukennara á íslandi, Alliance française og Sendiráð Frakklands á Íslandi. Nemendur skiluðu inn myndböndum og var þemað í ár „ Fjör í frönsku“. Verðlaun voru afhent [...]
Kæru nemendur, Slæm veðurspá virðist ætla að ganga eftir og því fellum við niður kennslu í dag. Leiðbeiningar Almannavarna og Lögreglu eru að fólk eigi að halda sig heima á meðan veðurviðvaranir eru í gildi. Fylgist með leiðbeiningum frá kennurum [...]
Á morgun fimmtudaginn 26. mars er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Við munum fylgjast með og láta [...]