Valdimar Örnólfsson fyrrverandi kennari við MR lést þann 20. apríl. Hann lauk stúdentsprófi við skólann árið 1953 og kenndi síðan íþróttir í MR á árunum 1957-1967 og einnig frönsku frá 1958 til 1972. Hann var íþróttastjóri hjá Háskóla Íslands frá 1967 og þangað til að hann fór á eftirlaun. Hann keppti á skíðum og var tvisvar fánaberi Íslands á vetrarólympíuleikum. Hann hafði einnig gaman af því að syngja og var meðal annars í MR kvartettinum.
Við sendum fjölskyldu Valdimars samúðaróskir okkar.