Í dag eru 180 ár síðan að Menntaskólinn í Reykjavík var fyrst settur í fallega skólahúsinu sem nú gengur undir nafninu Gamli skóli. Í tilefni dagsins verður móttaka fyrir framan Gamla skóla kl. 13 þar sem meðal annars rektor skólans flytur ávarp. Eftir móttökuna verða skólahúsin opin fyrir gesti til kl. 15:30.