Við óskum Morfís liði skólans innilega til hamingju með flottan árangur í Mælsku-og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Í úrslitaviðureigninni var umræðuefnið kostir og gallar gervigreindar og höfðu MR-ingar betur gegn liði Kvennaskólans.
Auk þess var MR-ingurinn Bergþóra Hildur Andradóttir valin ræðumaður Íslands og er hún sú yngsta í sögu Morfís til að hljóta þann titil. Það er ótrúlega flott og við óskum henni sérstaklega til hamingju með þennan flotta árangur.