Í dag eru þrír hópar af nemendum úr MR að kynna vörur sínar á vörumessunni Ungir frumkvöðlar sem haldin er í Smáralind. Þessir nemendur eru búnir að vera að hanna og þróa vörur sínar í áfanganum Fyrirtækjasmiðjan.
Skiptitorgið er vefsíða þar sem hægt er að kaupa, selja og skipta vörum með einföldum hætti, Kreaft er bragðgóður drykkur með kreatín og Gróa er hárolía sem unnin er úr náttúrlegum efnum.
Við óskum þessum frábæru nemendum til hamingju með flottar vörur.