Í febrúar var haldin þýskuþraut á vegum Þýskukennarafélags Íslands. Fjórir nemendur í MR fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í þýskuþrautinni.
Nemendur fengu bókaverðlaun frá þýskukennarafélaginu og sendiráði Þýskalands á Íslandi.
Á stigi 1 (nemendur sem eru búnir að læra þýsku í 1 ár) fengu eftirfarandi nemendur verðlaun:
Úlfur Oddsson, 4.B, 6. sæti
Styrkár Flóki Lífars. Snorrason, 4.J, 9. sæti
Á stigi 2 (nemendur sem læra þýsku í amk 2 ár) voru það:
Iðunn María Hrafnkelsdóttir, 6.A, 2. sæti og hún mun einnig taka þátt í EUROCAMP
Matthildur Grétarsdóttir, 5.A, 3. sæti