Skólinn hlaut á dögunum veglegan styrk frá Menningar- og framfarasjóði Ludvig Storr. Styrkurinn var nýttur til þess að endurnýja tækjabúnað í líffræðistofunni. Allar smásjár voru endurnýjaðar og keypt var ný kennarasmásjá með myndavél. Einnig voru mælar og sótthreinsitæki endurnýjuð. Tækin sem fyrir voru í stofunni voru kominn til ára sinna og því var það skólanum mikils virði að hljóta styrkinn og tryggja þannig áframhaldandi gæði verklegrar kennslu við skólann.
Menningar- og framfararsjóði Ludivg Storr eru færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn og ánægjulegt samstarf.