Endurtökupróf 2026
Próftafla fyrir endurtökupróf hefur nú verið birt. Hægt er að nálgast hana hér
Próftafla fyrir endurtökupróf hefur nú verið birt. Hægt er að nálgast hana hér
Aðalfundur Hollvinafélags MR verður haldin á Sal mánudaginn 1. júní kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf verða á dagskrá og ný stjórn kjörin. Við hvetjum öll sem hafa áhuga á starfi Hollvinafélagsins að fylgja félaginu á Facebook síðu þeirra: https://www.facebook.com/profile.php?id=100066778548190
Brautskráning nýstúdenta verður 29. maí kl. 14. Athöfnin verður haldin í Háskólabíó. Nemendur fá nánari upplýsingar síðar.
Rektor afhenti í gær nemendum í valáfanganum fyrirtækjasmiðjan viðurkenningaskírteini fyrir þátttöku í vörumessunni Ungir Frumkvöðlar. Nemendur í fyrirtækjasmiðjunni fengu tækifæri til að kynnast heimi nýsköpunar og atvinnulífs með því að þróa eigin vörur og reka lítil fyrirtæki. Markmiðið er að [...]
Í febrúar var haldin þýskuþraut á vegum Þýskukennarafélags Íslands. Fjórir nemendur í MR fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í þýskuþrautinni. Nemendur fengu bókaverðlaun frá þýskukennarafélaginu og sendiráði Þýskalands á Íslandi. Á stigi 1 (nemendur sem eru búnir að læra þýsku [...]
Skólinn hlaut á dögunum veglegan styrk frá Menningar- og framfarasjóði Ludvig Storr. Styrkurinn var nýttur til þess að endurnýja tækjabúnað í líffræðistofunni. Allar smásjár voru endurnýjaðar og keypt var ný kennarasmásjá með myndavél. Einnig voru mælar og sótthreinsitæki endurnýjuð. Tækin [...]
Valdimar Örnólfsson fyrrverandi kennari við MR lést þann 20. apríl. Hann lauk stúdentsprófi við skólann árið 1953 og kenndi síðan íþróttir í MR á árunum 1957-1967 og einnig frönsku frá 1958 til 1972. Hann var íþróttastjóri hjá Háskóla Íslands frá [...]
Við óskum Morfís liði skólans innilega til hamingju með flottan árangur í Mælsku-og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Í úrslitaviðureigninni var umræðuefnið kostir og gallar gervigreindar og höfðu MR-ingar betur gegn liði Kvennaskólans. Auk þess var MR-ingurinn Bergþóra Hildur Andradóttir valin [...]
Í dag eru þrír hópar af nemendum úr MR að kynna vörur sínar á vörumessunni Ungir frumkvöðlar sem haldin er í Smáralind. Þessir nemendur eru búnir að vera að hanna og þróa vörur sínar í áfanganum Fyrirtækjasmiðjan. Skiptitorgið er vefsíða [...]
Árleg frönskukeppni grunn-og framhaldsskólanna var haldin laugardaginn 12. apríl sl. Að keppninni standa Félag frönskukennara á íslandi, Alliance française og Sendiráð Frakklands á Íslandi. Nemendur skiluðu inn myndböndum og var þemað í ár „ Fjör í frönsku“. Verðlaun voru afhent [...]