Sjúkrapróf vor 2023
Tímasetning sjúkraprófa liggur nú fyrir og er hægt að nálgast töflurnar hér að neðan sem og hlekki undir Gagnlegar síður Sjúkrapróf 6. bekkur Sjúkrapróf 5. bekkur Sjúkrapróf 4. bekkur
Tímasetning sjúkraprófa liggur nú fyrir og er hægt að nálgast töflurnar hér að neðan sem og hlekki undir Gagnlegar síður Sjúkrapróf 6. bekkur Sjúkrapróf 5. bekkur Sjúkrapróf 4. bekkur
Dagana 5. - 9. júni verða haldin DELF próf fyrir nemendur í framhaldsskólum, í Alliance Française í Tryggvagötu 8 (gegnt Búllunni). Skráning verður opin frá 5.- 31. maí. Nemendur fá afslátt. Verð fyrir prófið er: A1 og A2: 4750 kr. [...]
Vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins dagana 16. og 17. maí má búast við umferðartöfum í miðbæ Reykjavíkur. Í ljósi þessa hefur verið tekin ákvörðun um að flytja próf sem áttu að vera á þriðjudag 16. og miðvikudag 17. maí á aðra daga [...]
Brautskráning verður í Háskólabíó 26. maí milli 14 og 16.
Verðlaunaafhending í keppni grunnskólanemenda í stærðfræði fór fram á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík sunnudaginn 16. apríl. Verðlaunahafar í 8. bekk eru: Sæti Nafn og skóli 1. Alexander Arnar Björnsson Vogaskóla 2. Sólveig Freyja Hákonardóttir Smáraskóla 3. Hákon Árni Heiðarsson [...]
Opið hús verður í skólanum laugardaginn 15. apríl milli 14 og 16. Verið hjartanlega velkomin og hlökkum til að sjá sem flesta.
Páskafrí hefst í skólanum á morgun, fimmtudaginn 30. mars. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 12. apríl. Við vonum að þið hafið það gott í fríinu.
Vorhlé verður í skólanum 23. og 24. febrúar. Kennsla hefst aftur mánudaginn 27. febrúar.
Ákveðið hefur verið að fella niður kennslu í fyrsta tíma á morgun (þriðjudag 7. febrúar). Gamli skóli verður opinn frá 08:00 fyrir þá sem þurfa en kennsla hefst í öðrum tíma kl. 09:00. Almannavarnir biðla til fólks um að vera [...]
MÍ (Menntaskólinn á Ísafirði) heldur stöðupróf í tælensku mánudaginn 13. febrúar. Í boði fyrir alla. Gott er að þátttakendur tiltaki tengilið í sínum skóla og gefa upp netfang hans/hennar. Nánar hér: https://misa.is/frettir/Stoduprof_i_taelensku/ Skráningarhlekkur hér: https://form.jotform.com/223123362843349 Stöðupróf í serbnesku verður [...]