TOLLERINGAR
Tolleringar fóru fram í Menntaskólanum í Reykjavík í dag í dásamlegu veðri. Við bjóðum alla nýnema velkomna í hóp nemenda MR. Myndir teknar af Trausta Þorgeirssyni
Tolleringar fóru fram í Menntaskólanum í Reykjavík í dag í dásamlegu veðri. Við bjóðum alla nýnema velkomna í hóp nemenda MR. Myndir teknar af Trausta Þorgeirssyni
Kynningarfundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánudagskvöldið 29. ágúst. Tjarnarsalurinn var þéttsetinn þegar rektor skólans, fulltrúi foreldrafélags MR, forvarnafulltrúi og félagsmálafulltrúi og forsvarsmenn nemendafélaganna kynntu skólann, starfsfólk og félagslíf nemenda. Forráðamenn gengu svo upp [...]
Á mánudaginn 29.ágúst tóku fjórir fyrrverandi nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til [...]
Foreldrum og forráðamönnum nemenda í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík er boðið að koma á kynningarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 29. ágúst kl. 20:00. Sólveig G. Hannesdóttir rektor mun kynna skólann og skólastarfið. Andrea Edda Guðlaugsdóttir inspector scholae, Ragnheiður Hulda [...]
Við minnum nemendur á lesloftið á Íþöku. Lesloftið er opið á opnunartíma bókasafnsins.
Menntaskólinn í Reykjavík var settur í dag í 177. sinn í Dómkirkjunni. Afar ánægjulegt var að sjá hversu margir mættu á skólasetninguna. Innritun nýnema í skólann gekk vel og sóttu 467 nemendur um inngöngu í skólann. Af þessum nemendum munu [...]
Nú er nýtt skólaár að hefjast og gott að vita hvað er framundan. Mánudaginn 15. ágúst opnar bóksalan, hún er staðsett á 1. hæð í Gamla skóla. Miðvikudaginn 17. ágúst kl. 10 eru kynningar fyrir nýnema. Fimmtudaginn 18. ágúst kl. [...]
Sólveig Guðrún Hannesdóttir hefur verið skipuð í embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík til fimm ára frá 1. ágúst. Við óskum henni innilega til hamingju með nýja embættið.
Skrifstofa Menntaskólans í Reykjavík er lokuð vegna sumarleyfa, fylgst verður með tölvupósti á mr@mr.is til 30. júní, skrifstofan opnar aftur fimmtudaginn 4. ágúst
Í gær, 14. júní, bauð sendiherra Frakklands í móttöku fyrir þá nýstúdenta sem útskrifuðust með afburðareinkunn í frönsku í framhaldsskólum landsins og forráðamenn þeirra. Lára Róbertsdóttir og Grétar Þór Halldórsson hlutu þessi verðlaun í MR. Við óskum þeim Láru og [...]