Heimsókn í Veröld – Hús Vigdísar
Nemendur á málabraut fóru í heimsókn í Veröld - Hús Vigdísar og fengu þar að njóta og upplifa sýninguna Mál í mótun. Nemendur voru sammála um að sýningin er afar vel heppnuð og höfðu bæði gagn og gaman af.
Nemendur á málabraut fóru í heimsókn í Veröld - Hús Vigdísar og fengu þar að njóta og upplifa sýninguna Mál í mótun. Nemendur voru sammála um að sýningin er afar vel heppnuð og höfðu bæði gagn og gaman af.
Búið er að innleiða nýjar reglur varðandi sóttvarnir. Grímuskylda verður tekin upp að nýju, reglurnar eru í raun þær sömu og við bjuggum við fyrir ekki svo löngu síðan: allir bera grímur á göngum skólans en nemendur mega taka niður [...]
Foreldrafélag Menntaskólans í Reykjavík heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 2. nóvember kl. 17. Fundurinn verður haldinn á sal skólans á 2. hæð í gamla húsinu. Farið verður yfir störf nýliðins skólaárs og línur lagðar fyrir nýhafið skólaár. Þá verður kosin stjórn [...]
Skólinn hefur fengið góða gjöf frá fyrrverandi nemendum sem fögnuðu 50 ára stúdentsafmæli sínu árið 2020. Þetta eru tveir bekkir sem eru staðsettir fyrir framan Gamla skóla, þar verður gott að sitja og virða fyrir sér mannlífið í bænum. Við [...]
Hausthlé er í skólanum 15. og 18. október. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá 19. október. Við vonum að þið hafið það gott í fríinu og hlökkum til að sjá ykkur aftur á þriðjudaginn.
Próftaflan fyrir jólapróf 2021 hefur nú verið birt á heimasíðu skólans. Hægt er að nálgast próftöfluna hér.
Forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór fram þriðjudaginn 28. október síðastliðinn. Yfir 200 keppendur úr hinum ýmsu framhaldsskólum tóku þátt. Árangur nemenda Menntaskólans var afar glæsilegur. Á neðra stigi átti Menntaskólinn 10 af 14 efstu en á efra stigi 16 af 25 efstu. Neðra [...]
Í síðustu viku fengum við góða gesti frá Grikklandi, Belgíu, Portúgal og Serbíu í heimsókn. Þetta eru samstarfsfélagar okkar í verkefninu Digital Rediness for Europe distant learning. Við kynntum fyrir þeim hvernig fjarkennslu var háttað hjá okkur í Covid og [...]
Minningarsjóður Önnu Claessen la Cour veitir íslensku námsfólki styrki til að stunda framhaldsnám í Danmörku. Nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík njóta einkum þessara styrkja, en Anna varð stúdent frá MR árið 1933, tæplega 18 ára að aldri. Umsóknarfrestur er til [...]