Í síðustu viku  fór fram verðlaunaafhending í smásögukeppni Félags enskukennara á Íslandi.

Hátíðarverðlaunaafhending fór fram á Bessastöðum og veitti forsetafrúin Elisa Reid verðlaunin.

Metþátttaka var í keppninni og náði Brynjar Karl Hákonarson í 5.T þeim frábæra árangri að fá önnur verðlaun í flokki framhaldsskólanema.

Við óskum Brynjari innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.