Heimsókn í Menntaskólann í Reykjavík |
Til nemenda og forráðamanna nemenda grunnskóla er hafa áhuga á að koma í heimsókn í MR á vormisseri 2019
Boðið er í heimsókn í MR á þriðjudögum kl. 15:00 á eftirfarandi dagsetningum:
5. febrúar, 12. febrúar, 19. febrúar, 26. febrúar, 5. mars og 12. mars.
Opið hús verður laugardaginn 23. mars
Náms- og starfsráðgjafi skólans kynnir nám og nemendur kynna félagslíf skólans. Einnig er farið í gönguferð um húsnæðið. Heimsóknin tekur um það bil 60 mínútur.
Hægt er að taka á móti um það bil 60 manns í hvert skipti þannig að nauðsynlegt er að bóka heimsókn. Hafið samband við skrifstofu skólans í síma 545 1900.
|