Úrslit í landskeppni framhaldsskólanna í líffræði eru ljós, en til leiks á úrslitadaginn mættu 20 mjög efnilegir framhaldsskólanemar.

Hlutskörpust í ár voru (f.v. á myndinni): Merkúr Máni Hermannsson (MR), Muhammad Shayan Ijaz Sulehria (MH), Ása Dagrún Geirsdóttir (Kvennó) og Jóakim Uni Arnaldarson (MR ) og verður þeim boðið að taka sæti í landsliði Íslands sem tekur þátt í Alþjóðaólympíukeppninni í líffræði 2025, sem fer fram í Quezon, Filippseyjum í júlí.

Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með þennan flotta árangur.