Innritun nýnema við Menntaskólann í Reykjavík er nú lokið. Alls bárust 794 umsóknir og þar af 310 umsóknir um MR sem 1. skólaval. Í haust tökum við inn 270 nýnema í ellefu bekki, tvo á málabraut og níu á náttúrufræðibraut.
Skólinn er fullskipaður en hægt er að skrá sig á biðlista ef pláss skyldi losna á mr@mr.is. Unnið verður úr biðlista þegar skólinn opnar að nýju í haust.
Greiðsluseðill fyrir skólagjöldum mun birtast á næstu dögum í heimabanka forsjáraðila. Skólavist er staðfest með greiðslu skólagjalda.
Menntaskólinn í Reykjavík verður settur miðvikudaginn 19. ágúst. Nemendur safnast saman fyrir framan skólann kl. 13:45. Þaðan verður gengið fylktu liði í Dómkirkjuna þar sem rektor setur skólann.
Við hlökkum til að sjá nýnema á nýnemakynningu miðvikudaginn 19. ágúst, en tímasetning verður auglýst síðar, hér á heimasíðu skólans.
Bókalistar eru aðgengilegir á heimasíðu skólans og stundatöflur verða aðgengilegar í Innu nokkrum dögum fyrir skólasetningu. Nemendur og forráðamenn hafa aðgang að upplýsinga- og kennslukerfinu Innu en nota þarf rafræn skilríki til þess að skrá sig inn. Í Innu er haldið utan um nám nemenda eins og til dæmis heimanám, einkunnir og viðveru.