Íslensku liðin sem tóku þátt í ólympíuleikum í efnafræði, líffræði og stærðfræði í sumar stóðu sig með miklum ágætum.
Ólympíuleikarnir í efnafræði fóru fram í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan og náði íslenska liðið sínum besta árangri í 20 ár.
Liðið skipuðu þau Daði Þór Friðriksson (Flensborg), Jón Oddur Högnason (MR), Fannar Smári Jóhannsson (MH) og Ása Dagrún Geirsdóttir (Kvennó).
Fannar hlaut bronsverðlaun og Ása Dagrún viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Ólympíuleikarnir í líffræði fóru fram í Vilníus í Litháen.
Lið Íslands skipaði: Agnar Helgason (MR), Eden Mayim Gittler (MH), Guðmundur Halldór Ingvarsson (MR) og Merkúr Máni Hermannsson (MR). Merkún Máni fékk sín önnur bronsverðlaun á leikunum og er hann eini Íslendingurinn sem hefur náð þeim árangri. Guðmundur Halldór fékk heiðursverðlaun fyrir góðan árangur. Gaman er að segja frá því að liðið notaði Selið okkar, sem staðsett er fyrir ofan Hveragerði, við undirbúning fyrir keppnina.
Það var einnig mjög góður árangur hjá liðinu sem keppti á ólympíuleikunum í stærðfræði sem fóru fram Sjanghaí, Kína. Lið Íslands skipuðu: Daði Logason (MR), Eysteinn Daði Hjaltason (Versló), Jóakim Uni Arnaldarson (MR), Magnús Thor Holloway (MR), Matthías Pálmason Skowronski (MR) og Patrek Ragnarsson (Evanstone Township High School).
Þetta var í 42. sinn sem Ísland tók þátt í ólympíuleikunum í stærðfræði. Fram að þessu hafði stigamet Íslendinga, heildarstigafjöldi allra sex keppanda, verið 63 stig og var það met sett 2006. En í ár tókst liðinu að bæta þetta met ríflega, með 78 stig í heildina. Patrek Ragnarsson fékk bronsmedalíu og 4 aðrir keppendur fengu heiðursviðurkenningu.
Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með árangurinn.