Opnað verður fyrir umsóknir þann 1. september n.k. vegna námsársins 2023-2024.
Nemendur sækja um á Mitt LAN með rafrænum skilríkjum. Þeir nemendur sem ætla að stunda nám á bæði haustönn og vorönn , eru hvattir til að sækja um báðar annir í einu.
Ekki eru veittir styrkir fyrir fjarnámi en dreifnám er styrkhæft ef nemendur þurfa að keyra í skólannn að meðaltali 3 daga í viku.
Jöfnunarstyrkur skiptist í dvalarstyrk og akstursstyrk:
Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Lögheimili má þó ekki vera í nágrenni skóla, sjá töflu um skilgreiningar á nágrenni skóla hér á heimasíðu sjóðsins. Akstursstyrkur er einnig fyrir þá nemendur sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur.
Dvalarstyrkur er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til þess að geta stundað nám sitt, það er, þeir nemendur sem eru á heimavist og/eða greiða leigu.
Nemendur verða að hafa gild tengsl við lögheimili en gild tengsl eru:
- Lögheimili er hið sama og foreldra/forráðamanns
- Sama lögheimili og maki (eða sambýlingur skv. skráðri sambúð í þjóðskrá)
- Sama lögheimili og barn/börn (senda kt. 1-2 yngstu barna)
- Eigandi að lögheimilishúsnæði –senda fasteignamatsvottorð
- Leigir lögheimilishúsnæði – senda þinglýstan leigusamning
Nemendur verða að taka próf í 20 einingum.
Hægt er að fá jöfnunarstyrk að hámarki í 4 ár eða 8 annir.
Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum getur þú sent fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is.