Stöðupróf í dönsku, ensku og þýsku verða haldin 14. september. Stöðuprófin eru eingöngu ætluð nemendum skólans.
Stöðupróf eru aðeins í boði fyrir nemendur sem búið hafa í lengri tíma í landi þar sem tungumálið er talað eða hafa tungumálið að móðurmáli.
Nánari upplýsingar og skráning í próf fer fram hjá námsráðgjöfum. Námsráðgjafar veita einnig upplýsingar um stöðupróf í spænsku og frönsku.