Foreldrum og forráðamönnum nemenda í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík er boðið að koma á kynningarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 31. ágúst kl. 17:00.

Sólveig G. Hannesdóttir rektor mun kynna skólann og skólastarfið.  Hákon Kristjánsson inspector scholae, Jakob Beck forseti Framtíðarinnar og fulltrúar Foreldrafélags Menntaskólans í Reykjavík munu ávarpa fundinn. Félagsmála- og forvarnarfulltrúar verða á staðnum.

Að því loknu er foreldrum og forráðamönnum boðið upp í MR þar sem þau munu eiga fund með umsjónarkennurum og skoða sig um í skólahúsnæðinu.  Vonandi komast sem flest.