Foreldrum og forráðamönnum nemenda í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík er boðið að koma á kynningarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 28. ágúst kl. 20:00.

Sólveig G. Hannesdóttir rektor mun kynna skólann og skólastarfið.  Magnús B. Þórisson inspector scholae, Kristrún Ágústsdóttir forseti Framtíðarinnar, félagsmála- og forvarnarfulltrúar og fulltrúi Foreldrafélags Menntaskólans í Reykjavík munu ávarpa fundinn.

Að því loknu er foreldrum og forráðamönnum boðið upp í MR þar sem þau munu eiga fund með umsjónarkennurum og skoða sig um í skólahúsnæðinu.  Vonandi komast sem flest.

Kær kveðja,

Sólveig G. Hannesdóttir rektor.