Nemendur, sem velja þessa deild, stefna flestir á nám í stærðfræði, raunvísindum, verkfræði og tölvunarfræði.
Í deildinni er mikil áhersla lögð á stærðfræði og eðlisfræði. Nemendur velja 5 einingar í frjálsu vali.
Vikulegar kennslustundir í námsgreinum skiptast á eftirfarandi hátt:
Grein: | Tímafjöldi í 5. bekk: | Tímafjöldi í 6. bekk: |
---|---|---|
Íslenska | 5 | 5 |
Enska | 6 | |
Franska, spænska eða þýska | 4 | |
Saga | 4 | |
Stærðfræði | 9 | 10 |
Líffræði | 3 | |
Efnafræði | 5 | |
Eðlisfræði | 8 | 8 |
Forritun | 3 | |
Val | 3 | |
Íþróttir | 2 | 1 |
Samtals: | 39 | 37 |