Lengi hefur staðið til að byggja við skólann. Meðal annars var haldin samkeppni um nýja byggingu fyrir aldarfjórðungi en það hús var aldrei byggt. Skólinn er nú með starfsemi sína í tíu húsum á svokölluðum Menntaskólareit sem afmarkast af Þingholtsstræti að Lækjargötu og Amtmannsstíg að Bókhlöðustíg. Til að rýma til fyrir nýja húsinu verður nýrri hluti hússins Casa Cristi rifinn, en það er friðað að hluta.

Elísabet segir að hluti húsnæðisins henti illa nútíma kennsluháttum. Þá standist það ekki kröfur um aðgengi. „Við ætlum fyrst og fremst að uppfylla skilyrði laga eins og til dæmis í sambandi við að hafa mötuneyti fyrir nemendur. Sal til þess að geta kallað nemendur saman og færanlegar kennslustofur og stjórnun skólans verði aðgengilegri. En hún er núna í risinu í Gamla skóla.“

Elísabet segir að þetta sé stór áfangi í langri sögu skólans. Lengi hafi staðið til að byggja við skólann. „Og allan þennan tíma hafa verið byggðir nýir skólar og byggt við aðra skóla. En einhvernveginn hafa menn alltaf heykst á því að fara í þessar framkvæmdir. Sem er að vissu leyti skiljanlegt, við erum á viðkvæmu svæði,“ segir Elísabet.

Sjá nánar hér: https://www.ruv.is/frett/2020/06/23/mr-staekkar-um-2600-fermetra-a-175-ara-afmaelinu