Í sumar tóku eftirfarandi MR-ingar þátt á Ólympíuleikunum og Evrópuleikunum í eðlisfræði:
Jón Valur Björnsson (6.X)
Hilmir Vilberg Arnarsson (6.X)
Hildur Gunnarsdóttir (5.Y)
Teresa Ann Frigge (5.Y)
Nemendur stóðu sig mjög vel á leikunum en sérstaklega má nefna árangur tveggja nemenda.
Jón Valur Björnsson fékk brons á Evrópuleikunum (EuPhO) og heiðursviðurkenningu á alþjóðlegu Ólympíuleikunum (IPhO) og Hilmir Vilberg Arnarsson fékk heiðursviðurkenningu á báðum leikunum.
Við óskum nemendum innilega til hamingju með góðan árangur.