22. Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram í framhaldsskólum landsins þriðjudaginn 28. febrúar. Alls tóku 103 nemendur þátt, úr sex skólum.
Sigurvegari 22. Almennu landskeppninnar í efnafræði er Jón Hilmir Haraldsson, nemandi við MH, en hann hlaut 85 stig af 100 mögulegum.
13 efstu keppendum er boðið að taka þátt í úrslitakeppni sem verður haldin í Háskóla Íslands helgina 25.-26. mars næstkomandi (nánari tímasetningar verða gefnar út síðar). Nemendum okkar sem boðið er að taka þátt í úrslitakeppninni eru:
Sæti Nafn
2 Björn Dúi Ómarsson
3 Elín Lilja Sindradóttir
4 Hrafnkell Hvanndal Halldórsson
5 Rökkvi Birgisson
7 Símon Orri Sindrason
9 Sigþór Haraldsson
10 Jónas Orri Egilsson
11-12 Pálína Björk M. Pálsdóttir
13 Kári Christian Bjarkarson
Fjórum efstu keppendum úrslitakeppninnar verður boðið að taka þátt í 6. Norrænu efnafræðikeppninni sem haldin verður í Danmörku og strax að henni lokinni í 55. Alþjóðlegu Ólympíukeppninni í efnafræði sem haldin verður í Sviss dagana 16.-25. júlí.