Verðlaunaafhending í keppni grunnskólanemenda í stærðfræði fór fram á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík sunnudaginn 22. mars.

Verðlaunahafar í 8. bekk eru:

Sæti     Nafn og skóli

1.          Eyvindur Páll Ólafsson Foldaskóla
2.          Kiljan Theodór Simonarson Heisterkamp Landakotsskóla
3.          Ragnheiður Kristín Harðardóttir Tjarnarskóla
4.-5.     Ari Andrey Ivansson Shelykh Langholtskóla
4.-5.     Lilja Jóhanna Birgisdóttir Ingunnarskóla
6.-7.     Unnur H Óskarsdóttir Laugalækjarskóla
6.-7.     Viktor Jónsson Háteigsskóla
8.-9.     Hólmfríður Elfa Guðmundsdóttir Foldaskóla
8.-9.     Kolbeinn Kjói Kjartansson Austurbæjarskóla
10.         Hrafn Styrkár Svavarsson Háteigsskóla

 

Verðlaunahafar í 9. bekk eru:

Sæti     Nafn og skóli

1.          Stefán Dagur Pálmason Kópavogsskóla
2.          Dagur Ingi Líndal Ingason Garðaskóla
3.          Halldór Finnsson Laugalækjarskóla
4.          Guðjón Steinar Árnason Árbæjarskóla
5.          Anna María Tómasdóttir Austurbæjarskóla
6.          Sebastian Smári Samúelsson Álftamýrarskóla
7.          Hákon Jensson Víkurskóla
8.          Salómon Blær Davíðsson Valhúsaskóla
9.          Björn Óli Hildar Sigrúnarson Árbæjarskóla
10.        Steinar Þór Oddsson Árbæjarskóla

 

Verðlaunahafar í 10. bekk eru:

Sæti     Nafn og skóli

1.          Sigþór Örn Gunnarsson Ingunnarskóla
2.          Hreiðar Ási Eydal Ölduselsskóla
3.          Steinn Atlason Hagaskóla
4.          Jónatan Vignir Guigay Hlíðaskóla
5.          Matthias Hallur Jóhannsson Háteigsskóla
6.-8.     Anna Soffía Borgarsdóttir Hagaskóla
6.-8.     Jörundur Elí Björnsson Kópavogsskóla
6.-8.     Rósalind Audrey H. Jónsdóttir Valhúsaskóla
9.          Hildur Ásgeirsdóttir Réttarholtsskóla
10.-11.  Halla Karítas Hartmannsdóttir Ölduselsskóla
10.-11.  Oliver Örtenblad Bergmann Valhúsaskóla

 

Athöfnin var afar vel sótt og var salurinn þétt setinn.

Stærðfræðikeppni grunnskólanema var haldin í MR þriðjudaginn 10. mars. Á fjórða hundrað nemendur úr 23 grunnskólum tóku þátt í keppninni úr 8., 9. og 10. bekk. Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur var nú haldin í 21. skipti í Menntaskólanum í Reykjavík. Sólveig G. Hannesdóttir rektor bauð gesti velkomna og sagði frá sögu skólans og frá ýmsum fróðleik. Ásdís Sólveig Tryggvadóttir, Hugrún Eva Haraldsdóttir og Þórunn Sveinsdóttir úr 6.R ásamt Kjartani Ragnari Kjartanssyni úr 6.S fluttu skemmtileg lög áður en Einar Guðfinnsson, fagstjóri í stærðfræði, afhenti verðlaun og viðurkenningar. Nemendur í 10 efstu sætunum á hverju stigi fengu viðurkenningarskjal frá skólanum og reiknivél af gerðinni Casio frá Heimilistækjum en þrír efstu á hverju stigi fengu einnig peningaverðlaun frá Arionbanka. Nokkrir þátttakendur höfðu áður fengið viðurkenningar í fyrri keppnum og fengu því bók í stað reiknivélar. Rektor þakkaði stærðfræðikennurum fyrir skipulagningu keppninnar og umsjón með framkvæmd hennar, nemendum skólans og kennurum fyrir aðstoð við yfirsetu í keppninni og Arionbanka fyrir að styrkja keppnina. Einnig þakkaði hann fyrir gott samstarf með skólastjórum og stærðfræðikennurum grunnskólanna.