Á tímum örrar þróunar í náttúruvísindum og tækni verður kunnátta í stærðfræði og náttúrufræðigreinum æ mikilvægari. Á náttúrufræðibraut er áhersla lögð á stærðfræði og náttúrufræðigreinar. Stúdentspróf af brautinni er góð undirstaða náms í þeim greinum svo og í læknisfræði, verkfræði, tölvufræði, viðskiptafræði og hagfræði.

Við lok 4. bekkjar velja nemendur á milli þriggja deilda: eðlisfræðideildar I, eðlisfræðideildar II og náttúrufræðideildar.

Verkleg kennsla fer fram í nýtískulegum sérkennslustofum þar sem aðstaða er eins og best verður á kosið.

Brautarlýsingar gilda frá haustinu 2026.

Námsgreinar á 1. ári – náttúrufræðibraut

Námsgrein Einingar
Danska 5
Efnafræði 8
Enska 5
Íslenska 8
Íþróttir 2
Jarðfræði 5
Lífsleikni 1
Saga 8
Stærðfræði 13
Tölvunarfræði 3
3. mál (franska, spænska, þýska) 8
Alls einingar 66

Fjöldi eininga í eðlisfræðideild I

Námsgrein 1. ár 2. ár 3. ár Einingar alls
Danska 5 5
Eðlisfræði 14 15 29
Efnafræði 8 8 16
Enska 5 10 15
Íslenska 8 10 10 28
Íþróttir 2 2 1 5
Jarðfræði 5 5
Líffræði 5 5
Lífsleikni 1 1
Saga 8 8 16
Stærðfræði 13 18 20 51
Tölvunarfræði 3 5 8
3. mál (franska, spænska, þýska) 8 8 16
Val 5 5
Fjöldi eininga alls 66 70 69 205

Fjöldi eininga í eðlisfræðideild II

Námsgrein 1. ár 2. ár 3. ár Einingar alls
Danska 5 5
Eðlisfræði 14 13 27
Efnafræði 8 8 16
Enska 5 10 15
Íslenska 8 10 10 28
Íþróttir 2 2 1 5
Jarðfræði 5 5
Líffræði 5 5
Lífsleikni 1 1
Saga 8 8 16
Stærðfræði 13 17 16 46
Tölvunarfræði 3 7 10
3. mál (franska, spænska, þýska) 8 8 16
Val 10 10
Fjöldi eininga alls 66 69 70 205

Fjöldi eininga í náttúrufræðideild

Námsgrein 1. ár 2. ár 3. ár Einingar alls
Danska 5 5
Eðlisfræði 5 5 10
Efnafræði 8 10 18
Enska 5 10 15
Íslenska 8 10 10 28
Íþróttir 2 2 1 5
Jarðfræði 5 5
Líffræði 12 16 28
Lífræn efnafræði og lífefnafræði 10 10
Lífsleikni 1 1
Saga 8 8 16
Stærðfræði 13 12 10 35
Tölvunarfræði 3 3
3. mál (franska, spænska, þýska) 8 8 16
Val 10 10
Fjöldi eininga alls 66 69 70 205

Brautarlýsingu fyrir nemendur innritaða 2025 eða fyrr er hægt að sjá hér.