Þann 9. febrúar fór fram verðlaunaafhending fyrir smásagnakeppni Félags enskukennara á Íslandi (FEKÍ) 2025. Athöfnin fór fram í Veröld – húsi Vigdísar og var haldin í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Breska sendiráðið. Embla Hlökk í 4.A vann fyrsta sæti í smásagnakeppninni. Við óskum henni innilega til hamingju með það.
Breski sendiherrann, Dr Bryony Mathew, afhenti verðlaunin. Þetta var í annað sinn sem hún gegnir þessu hlutverki fyrir FEKÍ og eru þau afar þakklát fyrir gott samstarf.
Fleiri skólar tóku þátt í ár en í fyrra og er það mikið gleðiefni. FEKÍ þakkar öllum þeim sem sendu inn sögur fyrir hönd nemenda sinna. Hér má lesa alla vinningssögurnar: https://online.fliphtml5.com/zifpq/hhjk/#p=1