Fimmtudaginn 13. febrúar fór fram almenna landskeppnin í efnafræði í 24. skipti. Alls tóku 78 nemendur þátt úr 8 skólum. 14 efstu keppendunum er boðið að taka þátt í úrslitakeppninni sem verður haldin helgina 8. – 9. mars í Háskóla Íslands.

Stigahæstur var Sigurður Baldvin Ólafsson, 6.X.  Áslaugu Lilju Þorgeirsdóttur, 6.S,  er einnig boðið að taka þátt í úrslitakeppninni og við óskum þeim báðum góðs gengis í úrslitunum.