Foreldrum og forráðamönnum nemenda í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík er boðið að koma á kynningarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 2. september kl. 20:00.

Sólveig G. Hannesdóttir rektor mun kynna skólann og skólastarfið.  Diljá Kristófersdóttir Kjerúlf inspector scholae, Fjóla Ösp Baldursdóttir forseti Framtíðarinnar, félagsmála- og forvarnarfulltrúar og fulltrúar Foreldrafélags Menntaskólans í Reykjavík munu ávarpa fundinn.

Að því loknu er foreldrum og forráðamönnum boðið upp í MR þar sem þau munu eiga fund með umsjónarkennurum og skoða sig um í skólahúsnæðinu.  Vonandi komast sem flest.