Hollvinafélag Menntaskólans í Reykjavík boðar til aðalfundar á Sal Menntaskólans í Reykjavík mánudaginn 5. júní klukkan 17:00. Dagskrá samkvæmt samþykktum:
- Formaður setur fundinn·
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram til umræðu
- Framlagning ársreikninga til umræðu og samþykktar
- Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins
- Aðrar tillögur rétt fram bornar
- Kosning 9 stjórnarmanna
- Kosning tveggja skoðunarmanna
- Önnur mál
Einfaldur meirihluti félagsmanna ræður úrslitum mála á aðalfundi.
Samþykktir félagsins má sjá hér (http://hollvinirmr.is/index.php/samthykktir).
Framboðsfrestur rennur út sjö dögum fyrir aðalfund. Tillögur sem leggja á fyrir fundinn skulu hafa borist stjórn eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Rétt til setu hafa allir stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Reykjavík, 17. maí 2023