Skólahjúkrunarfræðingur

Í skólanum starfa tveir hjúkrunarfræðingar, Arna Garðarsdóttir og Ásdís Eckardt.

Viðtalstímar Örnu eru mánudaga, þriðjudaga og föstudaga 10 – 14.

Viðtalstímar Ásdísar eru miðvikudaga og fimmtudaga 9 – 12.

Nemendur geta komið við eða sent fyrirspurnir með tölvupósti á arnag@mr.is eða á asdis.eckardt@heilsugaeslan.is . Fyrirspurnir mega vera nafnlausar.
Forráðamönnum nemenda er einnig velkomið að hafa samband með tölvupósti eða í síma 545-1919.

Viðtalsherbergi hjúkrunarfræðinga er á þriðju hæð í Skólahúsinu.

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

Meiðsli og sjúkdóma

Áfengis- og eiturlyfjaneyslu

Reykingar

Kynheilbrigði

Tilfinningaleg og geðræn vandamál

Verki eða vanlíðan

Mataræði og hreyfing

Sjálfsmynd og líkamsímynd

Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.

Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur

  • vera með fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
  • vera í samstarfi við forvarnarfulltrúa skólans við vinnu að forvörnum
  • vera innanhandar með ráðgjöf til kennara og starfsfólks
  • sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
  • finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda.