Íþaka
Í bókhlöðunni Íþöku er að finna bókasafn Menntaskólans í Reykjavík. Líkt og skólinn sjálfur, á það að baki langa sögu og óhætt er að segja að andi margra kynslóða stúdenta svífi yfir vötnum. Þó að safnið sé smátt í sniðum stenst það samanburð við hvert annað framhaldsskólasafn á landinu enda býr það vel að nýjum sem og gömlum ritum.
Afgreiðslutími
Safnið er opið frá kl. 8:00 til 13:00 og frá 14:00 til 16:00 alla virka daga. Lessalurinn er opinn milli 8:00 og 16:00 alla virka daga.
