Árið 1883 var nemenda- og málfundafélagið Framtíðin stofnað og hefur starfað í Menntaskólanum í Reykjavík síðan þá. Félagið hefur fylgt nemendum skólans í gegnum súrt og sætt, eflt mælsku- og ritlist innan skólans og haldið skemmtanir fyrir nemendur af ýmsu tagi. Félagið hefur haft umsjón með MORFÍs liði skólans og hinum árlega MR-VÍ degi. Það gefur út elsta skólablað landsins, Skinfaxa, sem nú hefur sameinast Skólablaðinu og heitir nú Skólablaðið Skinfaxi. Einnig sér félagið um böll nemenda eftir áramót en meðal þeirra er Árshátíð Framtíðarinnar og Miðannaball Framtíðarinnar.
Félagið hefur merka sögu að baki. Í stjórn þess hafa setið þjóðkunnir einstaklingar og þá oft þekktir stjórnmálamenn. Einnig starfa ótal undirfélög, nefndir og ráð innan Framtíðarinnar en þau eru: Auglýsinganefnd MR, Feministafélagið Aþena, Grænkerafélagið, Hagsmunaráðið, Hinseginfélagið Catamitus, Lagatúlkunarnefnd MR, Ljósmyndafélag MR, Mannréttindafélagið Cyrus, Róðrafélag MR, ritnefnd Skólablaðsins Skinfaxa, Skrallfélagið, Lúdó, Fífanefndin, Gjörningafélagið, Gólffélagið, Góðgerðafélagið, Heimspekifélagið, stjórn Frúardags, Leynifélagið, ritnefnd Loka Laufeyjarsonar, Skákfélagið, Andavinafélagið, Spilafélagið, Stuðmannafélagið, Vísindafélagið, Zkáldzkaparfélagið og Öldungarráðið. Að auki er innan Framtíðarinnar stjórn félagsins, amtljónsfjölskyldan og eftirfarandi einstaklingsembætti; blóraböggull, Don Pósei og tímavörður. Eins og heyra má er nóg í boði. Stjórn félagsins sér um utanumhald og yfirsýn en í henni sitja forseti, stiftamtmaður, tveir amtmenn, gjaldkeri og markaðsstjóri.
Stjórn Framtíðarinnar skólaárið 2025-2026
Forseti: Ólafur Helgi Kjartansson, sími: 774 0077, netfang: olafur.kjartansson@gmail.com
Stiftamtmaður: Elísabet Lára Gunnarsdóttir, sími: 699 2879, netfang: elisabetlara07@gmail.com
Gjaldkeri: Jóakim Uni Arnaldarson, sími: 858 3074, netfang: joakimunia@gmail.com
Amtmaður: Júlíus Máni Jónsson, sími: 626 2003, netfang: julius.jonsson07@gmail.com
Amtmaður: Anna Dagbjört Guðmundsdóttir, sími: 620 9115, netfang: annadagbjort1@gmail.com
Markaðsstjóri: Stefanía Lilja Jóhannsdóttir, sími: 855 1828, netfang: stefanialilja29@gmail.com
Hægt er að hafa samband á samfélagsmiðlum félagsins (@framtidin) og í netfangið framtidin@mr.is.