Málabraut MR – Lykill að atvinnulífi framtíðarinnar

Tungumál eru ekki orðin tóm heldur fela þau í sér menningu, sögu og tilfinningar. Þau eru samskiptagrunnur, auka víðsýni og efla menningarlæsi, færni sem veitir mikilvægt forskot í ört breytilegum heimi.

Menningarlæsi og tungumálakunnátta eru lykill að atvinnulífi framtíðarinnar og fátt undirbýr okkur betur undir alþjóðlegt umhverfi menningar- og atvinnulífs en nám í máladeild.

Tvær öflugar máladeildir: Nýmáladeild og fornmáladeild

Í nýmáladeild er áhersla lögð á tungumál sem töluð eru í heiminum í dag en í fornmáladeild er lögð áhersla á rótgróna evrópska menntahefð sem á rætur að rekja til Rómverja og Grikkja. Stúdentspróf af máladeild MR byggir grunn fyrir fjölbreytt háskólanám til að mynda í hugvísindum, félagsvísindum, listgreinum, lögfræði og menntavísindum.

Við kennslu erlendra tungumála í MR er lögð áhersla á að nota fjölbreyttar aðferðir og miðla til að gera námið líflegt, gagnlegt og skemmtilegt. Bekkjarkerfi MR er hvetjandi og veitir stuðning sem sést á því hve brottfall nemenda við MR er lítið.

Tungumálaþekking sem aflað er við stúdentspróf er mikilvæg þegar sérhæfðu háskólanámi lýkur og skapar samkeppnisforskot.

Brautarlýsingar gilda frá haustinu 2026.

Námsgreinar á 1. ári – málabraut

Námsgrein Einingar
Danska 10
Enska 10
Inngangur að tungumálum 3
Íslenska 8
Íþróttir 2
Jarðfræði 5
Lífsleikni 1
Saga 8
Stærðfræði 5
Tölvunarfræði 3
3. mál (franska, spænska, þýska) 9
Alls einingar 64

Fjöldi eininga í fornmáladeild

Námsgrein 1. ár 2. ár 3. ár Einingar alls
Danska 10 10
Enska 10 10 12 32
Fornfræði 5 5 10
Gríska 8 8 16
Inngangur að tungumálum 3 3
Íslenska 8 10 10 28
Íþróttir 2 2 1 5
Jarðfræði 5 5
Latína 13 13 26
Lífsleikni 1 1
Málvísindi 5 5
Saga 8 8 16
Stærðfræði 5 5 10
Tölvunarfræði 3 3
3. mál (franska, spænska, þýska) 9 11 10 30
Val 5
Fjöldi eininga alls 64 69 72 205

Fjöldi eininga í nýmáladeild

Námsgrein 1. ár 2. ár 3. ár Einingar alls
Danska 10 10
Enska 10 10 12 32
Félagsfræði 10 10 20
Inngangur að tungumálum 3 3
Íslenska 8 10 10 28
Íþróttir 2 2 1 5
Jarðfræði 5 5
Latína 5 5
Lífsleikni 1 1
Málvísindi 5 5
Saga 8 8 16
Stærðfræði 5 5 10
Tölvunarfræði 3 3
3. mál (franska, spænska, þýska) 9 11 10 30
4. mál (franska, spænska, þýska) 10 12 22
Val 10 10
Fjöldi eininga alls 64 68 73 205

Brautarlýsingu fyrir innskráða nemendur frá 2025 og fyrr er hægt að sjá hér.