Í þessari deild er mikil áhersla lögð á klassíska menntun í fornmálunum, latínu og grísku. Auk þess er kennsla í fornfræði og málvísindum, auk grunngreina máladeildar. Nemendur geta valið 5 einingar í bundnu vali. Í boði er danska, menningarsaga, sálfræði og viðskiptafræði.
Vikulegar kennslustundir í námsgreinum skiptast á eftirfarandi hátt:
| Grein: | Tímafjöldi í 5. bekk: | Tímafjöldi í 6. bekk: |
|---|---|---|
| Íslenska | 5 | 5 |
| Enska | 6 | 5 |
| Franska, spænska eða þýska | 6 | 5 |
| Latína | 6 | 6 |
| Gríska | 4 | 5 |
| Saga | 4 | |
| Stærðfræði | 3 | |
| Íþróttir | 2 | 1 |
| Fornfræði | 3 | 3 |
| Málvísindi | 3 | |
| Val | 3 | |
| Samtals: | 38 | 37 |