Kynningar fyrir nemendur í 10. bekk á námi og félagslífi í MR verða á eftirtöldum dögum:
- Mán. 3. feb. kl. 16.00 – 17.00
- Mið. 5. feb. kl. kl. 16.00 – 17.00
- Fim. 6. feb. kl. 16.00 – 17.00
- Mán. 10. feb. kl. 16.00 – 17.00
- Þri. 11. feb. kl. 16.00 – 17.00
- Mið. 12. feb. kl. 16.00 – 17.00
Á kynningunum fara námsráðgjafar skólans yfir námsframboð og skipulag námsins. Nemendur í 5. og 6. bekk kynna félagslífið og fylgja gestum í stutta gönguferð um húsnæðið.
Skráning fer fram á heimasíðu skólans, www.mr.is og hefst mánudaginn 27. janúar. Athugið að takmarkaður sætafjöldi er á kynningum og getum við því miður ekki tekið á móti forráðmönnum.
Opið hús
Opið hús verður fimmtudaginn 27. mars 17.00 – 18.30.