Kennarar úr MR fóru til  Portúgal í mars vegna verkefnisins  DIGI.R.E.DI. L sem stendur fyrir „Digital Readiness for European Distance Learning“. Þetta verkefni er samstarfsverkefni skóla í Grikklandi, Belgíu, Serbíu, Portúgal auk Íslands.

Lykilmarkmið þessa alþjóðlega samstarfs er að styrkja stafræna hæfni kennara og nemenda með nýjum hugbúnaði, verkfærum og aðferðum sem hægt er að nota til að auðvelda fjarnám og auka gæði þess og skilvirkni.

Samstarfsskólarnir deila þekkingu sinni og reynslu í ICT menntun og þróa saman kennsluefni með mismunandi hugbúnaði sem er kynntur og kennt á í móttökuskólanum.

Vinnustofurnar í Portúgal voru haldnar á tímabilinu 6. til 10. mars 2023. Viðfangsefni voru: Að sýna fram á hvernig TEAMS er notað til að samþætta stjórnunar- og kennslutæki.  Sýna hvernig á að hanna verkefni í MOODLE sem tekur á þörfum nemenda. Sýna notkun stafrænna verkfæra til að þróa tæknilega færni nemenda. Þróa stafræna og kennslufræðilega færni fjarkennslu og sýna samþættingu rafrænna öryggisferla við námsferlið.