Við viljum gjarnan þakka öllum þeim sem lögðu leið sína í skólann 1. október s.l. og sýndu okkur hlýju og væntumþykju á 180 ára afmælis skólans. Opna húsið var vel sótt og gaman að sjá bæði fyrrverandi nemendur og starfsfólk sem kíktu við.
Einnig þökkum við þeim sem mættu á viðburði í afmælisvikunni, sagnakvöldið þar sem MR-ingar miðluðu af minningum sínum síðan á skólaárunum og sögukvöldið þar sem farið var yfir sögu Gamla skóla í 180 ár. Okkar frábæra starfsfólk í íslensku- og sögudeildunum eiga hrós skilið fyrir að hafa skipulagt þessu skemmtilegu kvöld.