Það var gleðidagur í gær þegar Menntaskólinn í Reykjavík fagnaði 180 ára afmæli sínu.

Móttaka fór fram fyrir framan skólabygginguna á Lækjargötu.  Rektor ávarpaði samkomuna og minnti á mikilvægi MR í menntasögu landsins og hve mikilvægt væri að búa komandi kynslóðum MR-inga fullnægjandi aðstöðu til náms og þroska.

Forseti Íslands minnti á hversu mikilvægt samtal milli okkar allra væri til að móta nýtt og betra samfélag, öllum til handa.

Inspector scholae og forseti Framtíðarinnar voru verðugir fulltrúar nemenda á þessum tímamótum.

Að lokum hélt Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra tölu, þar sem hún tilkynnti um vilja ríkisstjórnarinnar til að bæta húsakost skólans, með endurgerða hússins að Amtmannsstíg 2B, Casa Christi.  Rektor og ráðherra undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis.

Að móttöku lokinni færðu gestir sig inn í hús skólans, þar sem nemendur, starfsfólk og gestir gátu spjallað um daginn og veginn og skólann sinn.

Til hamingju með daginn MR-ingar!